Hvaða bull er þetta.

Steingrímur og Jóhanna eru búin að blaðra um að allt eigi að vera opið og gegnsætt svo almenningur sé upplýstur um hlutina. Svo kemur Steingrímur og segir að aðrir hlutir en Icesave muni knésetja Ísland. Hvernig væri að segja beint út hvaða hlutir þetta séu í staðinn fyrir að fara í kring um hlutina eins og köttur í kring um heitan graut. Ég er persónulega viss um að hann veit ekkert í sinn haus hvað hann er að tala um.
mbl.is Icesave-skuldbindingarnar ekki hættulegastar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Látum ekki kúga okkur, höfnum icesave

Semjum upp á nýtt eða látum dómsstóla skera úr um hvort íslenska þjóðin sé í raun ábyrg fyrir einka banka fjárglæfra þjófa og glæpamanna.

Sjá úr viðtali við Evu Jolie:

Í viðtalinu er einnig rætt um málefni Íslands og þar segir Eva Joly m.a. að eftirlitsstofnanir með íslenska bankakerfinu hafi klárlega brugðist.

Þá gefur hún lítið fyrir strangar kröfur Alþjóðgjaldeyrissjóðsins vaxtastig á Íslandi og kröfur um endurgreiðslur á láninu sem Ísland fékk frá sjóðnum. Hún telur að kröfur sjóðsins geri Íslendingum erfitt fyrir að endurreisa efnahagslíf sitt.

„Sjóðnum er að stórum hluta stjórnað af Bretlandi sem beitir hörku gagnvart Íslandi," segir Joly. „Ísland glímir við risavaxnar skuldir en þjóðin telur aðeins 320 þúsund manns. Landið er í verulega slæmri stöðu."
mbl.is Icesave-ábyrgð úr ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auka verðbólgu minnka atvinnu.

Verðbólgu aðgerðir ríkisstjórnarinnar munu bitna verst á þeim sem minnst hafa.
mbl.is Spá 0,9% hækkun á vísitölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er skorið niður á réttlátan hátt?

Í stað þess að hækka skatta og álögur á fólk sem á ekkert eftir. Hvernig væri að fresta kostnaðarsömum framkvæmdum ríkis og sveitarfélaga og láta peningana renna í ríkissjóð. Fresta t.d tónlistarhúsi í Reykjavík, vegaframkvæmdum og öðru sem þolir bið. Þetta eru tugir miljarða ef ekki hundruð.

Það þolir ekki bið að bjarga fólkinu, heimilum og fyrirtækjum í landinu frá fjölda gjaldþrotum. Það verður óhemju kostnaðarsamt ef það gerist. Er öll skynsemi út um gluggan hjá ráðamönnum þjóðarinnar?

Fólkið í fyrsta annað og þriðja sæti, steypa seinna.


mbl.is Forsætisráðherra: Erfiðleikarnir eru meiri en búist var við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eina raunhæfa aðgerðin.

Til bjargar heimilum og fyrirtækjum þá er þetta eina raunhæfa tillagan sem komið hefur fram. Ef ríkisstjórnin fellir hana þá er það sönnun þess að hún hefur engan áhuga á að hjálpa fólkinu í landinu.

Ef hún fellir þessa tllögu þá fellir hún sjálfa sig í sömu andrá.


mbl.is Tillaga um niðurfellingu lögð fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Húrra loksins aðgerðir

Þetta verður örugglega til þess að bæta hag almenings í landinu. Heimilin sjá fram á bjartari daga og blóm í haga. Losna við 150% veðsettu eignir sínar og geta farið að lifa lífinu. Ég veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta. Þetta er alveg duglaust batterí. Skipta um nöfn, stóla eða herbergi. Þetta er það sem hefur komið frá þessari ríkisstjórn. Allavega sér almenningur engar lausnir. Hvernig væri að koma almennum lánum niður þannig að fólk geti lifað. Þetta endar með því að við förum að sjá betlara með bauka út um allt ef ekki verður tekið á raunverulegum vanda fólksins.
mbl.is Ráðuneyti skipta um nöfn og hlutverk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhönnu tími mun koma!

Bara ekki fyrr en eftir að 28.500 heimili eru komin í þrot.
mbl.is 28.500 fjölskyldur í þrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er NÚ hægt af fara að hugsa um blæðandi þjóð!

Hvernig væri fyrir ESBfylkinguna að fara að hugsa um íslensku þjóðina. Heimilin og fólkið sem er að blæða út. HVAR eru úrræðin. Jóhanna sem að sögn átti að vera dugleg að vinna fyrir fólkið. Þetta reyndist vera bull. Hún er þarna fyrir sig og ESB gælur sínar og virðist vera alveg sama um land og þjóð. HVAR ERU úrræðin fyrir fólkið, HVAR!
mbl.is ESB-tillaga lögð fram á þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarf að gerast strax!

Loksins eitthvað af viti. Algjörlega sammála Atla. Ekki einblína á gæluverkefni. Núna þarf að bjarga ÞJÓÐINNI Evrópusambands umræður eru bara til að dreyfa athyglinni frá aðal vandamálinu. Það þarf að koma hjólum fjármagns og atvinnulífs af stað á Íslandi og má ekki bíða með það LENGUR!

Pólitískar línur eiga ekki við núna heldu eiga ALLIR að taka höndum saman og bjarga okkur.

ÞJÓÐSTJÓRN núna!


mbl.is Atli: Atvinnuleysið er þjóðarböl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfram Liverpool!

En þó ég haldi með Liverpool þá er ég algjörlega sammála Ferguson varðandi Giggs. það eina slæma sem hægt er að segja um Giggs að mínu mati er að hann er ekki í Liverpool. En sem knattspyrnumanni þá á hann þessa viðurkenningu fyllilega skilið eftir allt sem hann hefur afrekað á ferlinum og á þessu tímabili. Ber mikla virðingu fyrir honum.
mbl.is Ferguson: Giggs verðskuldar að vera valinn bestur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband